Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1140, 121. löggjafarþing 258. mál: almenn hegningarlög (punktakerfi).
Lög nr. 57 22. maí 1997.
I. KAFLI
Breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940.
Sekt sem ekki er ákveðin af dómstólum skal afplánuð í varðhaldi.
Sekt allt að 100.000 krónum sem sakborningur hefur skriflega gengist undir hjá lögreglustjóra afplánast með varðhaldi eftir meðfylgjandi töflu:
Lagagrundvöllur vararefsingarinnar og lengd varðhaldsins skulu tilgreind í lögreglustjórasátt og skal sakborningur gangast skriflega undir vararefsinguna ásamt öðrum viðurlögum.
II. KAFLI
Breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987.
Sektir allt að 100.000 krónum fyrir brot á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim skulu ákveðnar í reglugerð sem dómsmálaráðherra setur að fengnum tillögum ríkissaksóknara. Í reglugerðinni skal tilgreint hvaða tegunda brota hún tekur til og hvaða sekt og önnur viðurlög skuli koma fyrir hverja tegund brots. Heimilt er að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar ef veigamikil rök mæla með því.
Þegar ákvörðun er tekin um sekt vegna brota á tveimur eða fleiri ákvæðum laga þessara eða reglna settra samkvæmt þeim skal sektin vera samtala sekta vegna hvers brots um sig, enda rúmist refsingin innan sektarmarka almennra hegningarlaga.
Veita má sakborningi allt að 25% afslátt af sektarfjárhæð sem lögreglustjóri hefur ákvarðað ef sakborningur greiðir sektina ásamt sakarkostnaði að fullu innan 30 daga frá dagsetningu sektarboðs eða undirritun sektargerðar sem sakborningur hefur gengist skriflega undir.
Nú hefur maður á þriggja ára tímabili gerst sekur um þrjú eða fleiri brot á lögum þessum eða reglum og reglugerðum settum samkvæmt þeim og náð tilteknum punktafjölda samkvæmt punktakerfi vegna umferðarlagabrota, og skal hann þá sviptur ökurétti í þrjá mánuði til viðbótar þeirri sviptingu ökuréttar sem við síðasta brotinu kann að liggja. Dómsmálaráðherra setur, að fenginni umsögn ríkissaksóknara, reglugerð um punktakerfi vegna umferðarlagabrota, þar á meðal um hvaða vægi einstök brot skuli hafa í punktum talið við ákvörðun um beitingu sviptingar ökuréttar vegna uppsöfnunar punkta.
III. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð opinberra mála, nr. 19 26. mars 1991.
IV. KAFLI
Gildistaka.
Þingskjal 1140, 121. löggjafarþing 258. mál: almenn hegningarlög (punktakerfi).
Lög nr. 57 22. maí 1997.
Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, o.fl. (innheimta sekta og punktakerfi vegna umferðarlagabrota).
1. gr.
Við 2. mgr. 52. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Eigi skal þó veita lengri greiðslufrest en eitt ár frá því að sekt kemur til innheimtu.2. gr.
Við 54. gr. laganna bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Sekt sem ekki er ákveðin af dómstólum skal afplánuð í varðhaldi.
Sekt allt að 100.000 krónum sem sakborningur hefur skriflega gengist undir hjá lögreglustjóra afplánast með varðhaldi eftir meðfylgjandi töflu:
Sekt: | Vararefsing: | ||
0– | 9.999 | kr. | 2 dagar |
10.000– | 19.999 | kr. | 4 dagar |
20.000– | 29.999 | kr. | 6 dagar |
30.000– | 39.999 | kr. | 8 dagar |
40.000– | 49.999 | kr. | 10 dagar |
50.000– | 59.999 | kr. | 12 dagar |
60.000– | 69.999 | kr. | 14 dagar |
70.000– | 79.999 | kr. | 16 dagar |
80.000– | 89.999 | kr. | 18 dagar |
90.000– | 100.000 | kr. | 20 dagar |
3. gr.
Við 100. gr. laganna bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Sektir allt að 100.000 krónum fyrir brot á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim skulu ákveðnar í reglugerð sem dómsmálaráðherra setur að fengnum tillögum ríkissaksóknara. Í reglugerðinni skal tilgreint hvaða tegunda brota hún tekur til og hvaða sekt og önnur viðurlög skuli koma fyrir hverja tegund brots. Heimilt er að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar ef veigamikil rök mæla með því.
Þegar ákvörðun er tekin um sekt vegna brota á tveimur eða fleiri ákvæðum laga þessara eða reglna settra samkvæmt þeim skal sektin vera samtala sekta vegna hvers brots um sig, enda rúmist refsingin innan sektarmarka almennra hegningarlaga.
Veita má sakborningi allt að 25% afslátt af sektarfjárhæð sem lögreglustjóri hefur ákvarðað ef sakborningur greiðir sektina ásamt sakarkostnaði að fullu innan 30 daga frá dagsetningu sektarboðs eða undirritun sektargerðar sem sakborningur hefur gengist skriflega undir.
4. gr.
Við 101. gr. laganna bætist ný málsgrein, er verður 2. mgr., svohljóðandi:Nú hefur maður á þriggja ára tímabili gerst sekur um þrjú eða fleiri brot á lögum þessum eða reglum og reglugerðum settum samkvæmt þeim og náð tilteknum punktafjölda samkvæmt punktakerfi vegna umferðarlagabrota, og skal hann þá sviptur ökurétti í þrjá mánuði til viðbótar þeirri sviptingu ökuréttar sem við síðasta brotinu kann að liggja. Dómsmálaráðherra setur, að fenginni umsögn ríkissaksóknara, reglugerð um punktakerfi vegna umferðarlagabrota, þar á meðal um hvaða vægi einstök brot skuli hafa í punktum talið við ákvörðun um beitingu sviptingar ökuréttar vegna uppsöfnunar punkta.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 115. gr. laganna:- Í stað 1. og 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað orðanna „2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: 1. mgr.
- Orðin „og 2.“ í fyrri málslið 4. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „2. mgr.“ í síðari málslið 4. mgr. kemur: 1. mgr.
6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1997.Samþykkt á Alþingi 9. maí 1997.